Mér hefur liðið betur, en ég ætla ekki að fara að kvarta. Var í smá hypomaníu um daginn, c.a. 2 vikur síðan og var hætt að sofa og svefninn er enn vandamál, en ég held að hann sé smám saman að lagast. Núna er ég með fjölskyldunni uppi í Skorradag og allir sitja úti í sól og rúmlega 20 stiga hita, en ég get ekki verið með af því að ég brenn svo auðveldlega og bara það að fá sólina á fötin, brennur. Þetta er útaf því að ég er að taka 2 týpur af lyfjum sem hafa áhrif á húðina í sól og ég komst að því með sársaukafullri reynslu. 
Svo er ég að byrja aftur á Grensás að hreyfa mig og ætla jafnvel að fara að byrja að kíkja á Hlutverkasetur, svo verður það Reykjalundur í lok ágúst, þannig að það er nóg að gera, sem er bara gott...
Ég er inni á deild eins og er og búin að vera í 2 vikur, hef ekki getað skrifað neitt, bara verið of þunglynd. Þetta ætlar bara að vera upp og niður hjá mér, virðist vera. En ég er ennþá að læra að lifa með þessu. Læknirinn minn setti mig á litarex til að minnka uppsveiflurnar hjá mér og þar af leiðandi niðursveiflurnar líka, þá gæti verið von að eðlilegu lífi, vona ég... alveg rosalega mikið. Ég er mest bara að bíða og sjá hvað gerist, mér finnst allt vera frekar óljóst eins og er, en þannig er þunglyndið, maður má ekki sjá að allt verði í lagi af því að maður trúir því ekki.
Ekki mikið hefur gerst á þeim tíma sem ég hef ekki skrifað, nema það að grein sem læknirinn minn skrifaði um minnisleysið þarna um árið kom út núna í mars og  flest allir fjölmiðlar reyndu að fá viðtal við hann útaf þessu, meira að segja bbc, en greinin hjálpaði mörgum í fjölskyldunni að skilja mig og hvað kom fyrir. Þetta fór samt soldið úr böndunum og varð að æsifréttamennsku, margir báðu hann um viðtal og vildu vita hver ég væri. Það var soldið skrýtið að lesa þessa grein og margt um mig sem ég vissi ekki.
Svo lét ég stækka vinnsluminnið í tölvunni og hef þarf af leiðandi getað spilað "the sims" og er búin að gera soldið af því til að reyna að gleyma mér, stundum gengur það vel, en oftast á ég erfitt með að gleyma mínum hugsunum og tilfinningum.
Ég er byrjuð í smá líkamsrækt, er farin að hjóla soldið í salnum niðri í iðju og er með íþróttafræðing með mér sem fylgist með og segir mér hvað ég á að gera, vonandi verður það til þess að ég léttist eitthvað, veitir ekki af. Það er líka smá lúxus á minni en ég fór í svæðanudd á miðvikudaginn og það var bara nokkuð gott og ég fer aftur á þriðjudaginn. En nóg af mér í bili, ég reyni að skrifa oftar þegar og ef mér fer að líða betur.
Kveðja, Dísa
            <description><![CDATA[Jæja, nú er ég farin að geta sofið venjulega, sem ég gat ekki áður nema með að rota mig með rótsterku lyfi. Ég þarf að vísu nokkuð mikið af lyfjum til að geta sofið, en þetta er mikið betra. Svo hef ég fengið annað lyf sem minnkar pirringinn í mér mikið, ég er ekki alltaf á fleygiferð né hugsanirnar ofurhraðar. Svo mér líður ágætlega eins og er, en það má búast við smá niðursveiflu eftir allt þetta... annars veit maður aldrei. Núna á ég von á vinum mínum í spilakvöld, þau ætla að koma eftir júróvisjón, sem ég hef aldrei skilið hvernig fólk nennir að horfa á, en það er annað mál. 
Ég er búin að vera að mestu ein í dag, fyrir utan smá verslunarferð með mömmu í hádeginu, og mér er búið að leiðast rosalega mikið. Málið er að mig langar svo í félaga, hund sem ég get haft, t.d. chiahuahua eins og Marco sem ég átti einu sinni, ég get haft hund sem þarf ekki mikla hreyfingu, mér finnst bara að það ætti að leyfa dýrahald hjá fólki með fötlun sem býr eitt og er eitt. Ekki er auðvelt að komast í heimsóknir til vina af því að ég get ekki farið upp og niður stiga. Það er líka svo gefandi af vera með svona dýr, að hugsa um þau og láta þeim líða vel. Það er eins og að vera með barn að hafa svona kríli hjá sér, kannski ekki alveg eins mikil vinna, en félagsskapurinn er góður. Svo er hægt að vera mikið í ræktun og sýningum ef maður er með hreinræktaðan hund, eins og Marco var, en ég ætla ekkert endilega að fá mér svoleiðis aftur. Ég hef mikið verið að hugsa um að sækja um íbúð á jarðhæðinni í húsinu sem ég bý í, ef það er hægt, en það verður mikil bið á býst ég við. Ég þarf bara félagsskap, það er óþægilegt að vera mikið ein.]]></description>
            <description><![CDATA[Já, mér leiðist. Ég er búin að vaka síðan hálf tvö og búin að hanga í tölvunni allan tímann síðan. Ég er greinilegur tölvufíkill og viðurkenni það alveg, en hún er sú eina sem heldur mér félagsskap þegar ég er ein. Ég horfði soldið á prison break, komin á þriðju seríu.
Ég er greinilega komin á maníu stig, ég get ekki verið kjurr, lappirnar á mér eru á fullu mest allan sólarhringinn, ég er með mjög hraðar hugsanir og ætla mér mikið, ég er eirðarlaus og með lélega einbeitingu, ég þarf alltaf að kíkja á eitthvað annað eða finna eitthvað annað að gera. Ef ég væri ekki svona léleg líkamlega hefði ég gjarnan gert eitthvað í nótt, eins og að þrífa fyrir mömmu og pabba þar sem ég var heima hjá þeim í nótt. Við mamma áttum að fara á HAM námskeið í dag, en það þýðir ekki fyrir mig að fara á fyrirlestur eins og ég er. Öll á fleygiferð og ekki með neina einbeitingu. Mamma var eitthvað að segja að ef læknirinn minn vildi þá ætti ég að fara inn á deild, en ég vil það ekki. Mér líður vel, sem er víst ekki nógu gott *pirr*, þau eru hrædd um það þegar ég fer niður að ég verði rosalega þunglynd. En hvað á ég að gera?, ekki ræð ég við þetta, ég er ekki að leika mér að þessu. En af hverju ekki að leyfa sér að líða vel þegar maður getur?
Það er leiðinlegt að vita að mamma og pabbi eru með áhyggjur, en ég get ekkert gert til að sannfæra þau um að mér líði vel. Þetta er flókið.]]></description>
Ég er víst með geðhvarfasýki, allavega smá. Ég hef aldrei farið mjög hátt upp, en verið mjög ör. Þannig er það að fara núna held ég og læknirinn minn, hann er búinn að minnka þunglyndislyfið og setja mig á abilify aftur + nokkra daga skammta af rivotril sem rotar mig á stundinni, þannig að ég er búin að sofa í 2 nætur í röð sem er alveg snilld. En svo hætti ég á því eftir helgi og þá er að sjá hvort ég fari meira upp eða hvort ég verð bara "venjuleg". Það er frekar flókið þetta lyfjamál, ég tek allt að 30 töflur á dag, venjulega og hvað er hvað, er ég ekki viss um, ekki nákvæmlega, en ég er að læra á þetta.
Með einkenni geðhvarfasýki, þá hef ég farið nokkru sinnum upp og það byrjar á örlyndi, pirringi, lappirnar á mér eru á fullu og ég er með mjög hraðar en ruglandi hugsanir. Ég á erfitt með að einbeita mér og vil helst gera allt sem ég hugsa um, fæ margar hugmyndir, en líkamlega er ég það hömluð að ég get ekki gert allt sem ég vil, ég er byrjuð að mála, ég fylgist vel með handboltanum æst en glöð þegar vel gengur, svo er ég að gera margt á tölvunni, búin að skrifa niður 34 kassa af bókum sem afi átti, svo er ég að finna hitt og þetta til að gera. Mér leiðist að vera ein, vil helst hafa allt skemmtilegt í kringum mig, en ég get svosem verið sátt að vera aðeins ein, en ekki lengi. Það besta við maníu er vellíðanin, ég er ekkert down eða leið, þó ég kvíði soldið að fara aftur niður, því það kostar þunglyndi og því dýpra eftir því hversu hátt maður fer upp. Svo ég vona að ég geti verið aktív en ekki of mikil.... ef þið skiljið hvað ég er að segja :)
Kveðja, Dísa
Jæja, ég er loksins farin að geta sofið. Til þess þarf ég að taka inn rótsterkt svefnlyf og ég er lengi að jafna mig á morgnana. En það er svo gott að geta sofið að þið trúið því ekki. Læknirinn minn vildi reyna þetta þar sem hann grunar að ég fari upp í maníu ef þetta er ekki kæft strax í fæðingu, sem er gott, þó manían er góð að því leyti að manni líður vel, þá eru margar aukaverkanir sem enginn mun vilja hafa, allt sem maður gerir af sér, og svo endar það með þunglyndisdýfu, sem er hræðileg líðan. Auðvitað er ekki gott að þurfa að taka inn svona mikil svefn- og róandi lyf og þetta nýja er bara í nokkra daga til að fá svefninn í lag. En hver nótt munar miklu. Svo er annað, þegar maður er í maníu er maður að fara að gera svo margt, fær miklar hugmyndir og er duglegur að byrja á einhverju, en fylgir því svo ekki eftir og svo verður maður mjög duglegur að eyða öllum peningum og þvi sem maður á, allavega verð ég mjög gjafmild og geri allt til að þóknast öðrum í kringum mig og læt sjálfa mig sitja á hakanum. Ég held ekki að ég sé í maníu, en ef svo hefði verið að fara þá er allavega búið að kæfa það í bili.
En nú er að koma að því að HM í handbolta byrji hjá Íslenska liðinu, við eigum að mæta Ungverjalandi í dag og ég er að springa úr spennu ég hlakka svo til. Ég er bjartsýn af því að við eigum fanta góða stráka þarna úti og ég býst við góðum leikjum, þetta er allavega góð skemmtun og ég vona bara að þeir nái að standa sig.
Ég segi bless í bili
Kveðja, Dísa
Hér eru smá glósur út bæklingi um svefn og svefnleysi, þar sem það er nálægt mér þessar vikurnar. Ég er hætt að geta sofið og veit ekki af hverju, ég fæ að vísu ekki svar við því með því að lesa þennan bækling en hann er fróðlegur.
Enginn veit nákvæmlega af hverju við þurfum að sofa og eyða þannig þriðjungi ævinnar í svefn. En það er samt forsenda þess að lifa góðu lífi, geta verið hress yfir daginn og funkerað vel. Veruleg syfja, óþreyja, skert athygli, sinnuleysi, áhugaleysi og dómgreindarskortur eru einkenni sem koma ef maður sefur bara örfáa tíma á nóttu. Flestir hafa prófað það að vera svefnlaus einhvern tíma á ævinni og sumir verða fyrir alvarlegum truflunum sem eru aðallega fólgnar í því að fólk sofnar seint, aðallega útaf kvíða. Svo getur fólk líka vaknað of snemma en það tengist oft þunglyndi. Það er talkð eðlilegt að fólk sofni innan 15 mínútna eftir að það fer upp í rúm og lokar augunum, svo er líka eðlilegt að vakna 3-4 sinnum á nóttu.
Eðlilegur svefn skiptist í tvo flokka, NREM (non-rapid eye movement) og svo hinsvegar REM (rapind eye movement). Svo er NREM skipt í fjögur stig, en REM ekki. Ég ætla ekki að telja upp þessi stig en það tekur langan tíma að útskýra þau.
Flokkun svefntruflana:
1. Almennar svefntruflanir
2. Svefnlæti
3. Truflanir á dægurlotum svefns
4. Svefntruflanir vegna andlegra eða líkamlegra sjúkdóma
Til almennra svefntruflana teljast svefnleysi, streitusvefnleysi, svefnhöfnun, svefnröskun, svefntruflanir vegna óhollustu og svefntruflun vegna röskunar á svefnvenjum. Svefnsækni er líka eitt og það er þegar fólk er oft mjög þreytt þrátt fyrir venjulegan nætursvefn. Drómasýki eða narcolepsy er eitthvað sem margir hafa heyrt um eða það er mjög sjaldgæf truflun. Svo er það kæfisvefn
Svefnlæti eða óróleiki í svefni er mun algengari hjá börnum frekar en fullorðnum. Það er meðal annars trufluð vöknun, svefnganga, svefnkvíði, svefnhreyfingar, svefntal, tanngnístur og svefnþvaglát sem er nær eingöngu hjá börnum og heilaskertu fólki.
Svefntruflanir á dægurlotum svefns. Röskun á svefn- og vökuvenjum, eins og þekkist í ferðalögum, eða vinnur vaktavinnu. Sumir bara þola ekki slíkt. Dægurlotutruflun er röskun á miðtaugakerfi og snýst aðallega um það að "sjúklingarnir" þurfi meiri svefn en aðrir og geta sofið meira en sólarhring.
Sventruflanir vegna andlegra og líkamlegra sjúkdóma. Svefntruflanir vegna andlegra sjúkdóma eru mjög algengar meðal sjúklinga sem líða af geðrofi, svo sem geðklofa eða þunglyndi, örlyndi, lystarstoli, kvíða og áfengissjúkdómum.  Sjúklingar sem þjást af geðklofa hafa tilhneigingu til að sofa á daginn og vaka á nóttunni en sjúklingar sem þjást af kvíða eiga þá frekar erfitt með að sofna og hrökka oft upp. En svefntruflanir vegna líkamlegra sjúkdóma eins og taugasjúkdómum eins og hrörnunarsjúkdómum, parkinsonsveiki og fleiru, getur fylgt vaxandi svefnþörf og truflun á dægurlotum. Svipað má segja um sjúklinga sem líða af þvageitrun, skjaldkirtilssjúkdómum ofl. Andþyngsli geta verið vegna ýmis konar lungnasjúkdómum. Hvers konar verkir og önnur líkamleg vanlíðan truflar líka svefn.
Jámm, svo er nú það, ég vildi að ég vissi hvað ég á að gera til að geta sofið, því svefnleysi er þreytandi :p  
Það er ekki heilsusamlegt að sofa bara 2-3 tíma á nóttu margar nætur í röð. Ég var samt heppin á laugardaginn að ég gat sofið alveg heila nótt sem var alveg æðislegt, en svo heldur þetta áfram. Þetta er bara soldið skrýtið þar sem ég gat sofið heilu sólarhringana þegar ég var unglingur, en eftir að ég veiktist á geði hefur svefninn verið stórt vandamál, samt er ég á hellingi af svefn- og róandi lyfjum sem eiga að hjálpa mér og þau gera það oft, bara ekki nógu lengi.
bið að heilsa í bili
Kveðja, Dísa
Staðan í dag, er fín. Mér gengur ágætlega, fyrir utan svefnleysið sem ég er að díla við. Ég hef sofið að meðaltali 2-21/2 tíma á nóttu síðustu vikuna. Sem betur fer veit ég að enginn deyr af svefnleysi, en það er mjög óþægilegt, maður verður eins og lifandi dauður. Þrátt fyrir að ég er að taka inn fílaskammta af svefnlyfjum, þessvegna er þetta hálfgerð ráðgáta hjá mér. 
Annars hef ég lítið verið að gera undanfarið, ég er búin að vera með leiðinlega kvefpest og hnerra eins og ég fái borgað fyrir það, annars er ég góð. Ég hef mætt í iðjuþjálfun einu sinni í vikunni (á að vera tvisvar), en ég var bara of slöpp til að mæta hitt skiptið. 
Ég er núna heima hjá mömmu og pabba, ætla að gista af því að ég var að horfa á landsleikinn (sem var algjört æði) og svo horfðum við á Útsvar, svo þetta er gott sjónvarpskvöld. Býst við að ég setji einhverja DVD á eftir eða horfa á prison break sem ég er orðin sjúklega spennt yfir, hef horft á 18 þætti á 3 sólarhringum, hef svosem ekkert annað að gera...
Ég er mjög ánægð með frammistöðu strákanna okkar í kvöld, þeir voru með yfirhöndina mest allan leikinn gegn þýskurunum og ég vona að það fari þannig líka á morgun. Gott að sjá Guðjón Val aftur, þó ég sakni Loga soldið, svo stóð Alex sig rosalega vel en enginn stóð þar sem Óli hafði hælana, ég get ekki annað en kviði fyrir því þegar Óli hættir í landsliðinu, hann er svo góður fyrirliði og góð fyrirmynd fyrir bæði ungu strákan í liðinu og svo bara utan vallarins líka. Þeir eiga sko alveg skilið að komið sé fram við þá eins og rokkstjörnur...
En, ég ætla að kveðja í bili, takk fyrir mig í dag
Kveðja, Dísa
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla :)
Jæja, í gær útskrifaðist ég af deildinni og ég er mjög fegin, ekki að það hafi verið vont að vera þar, ég var veik og þurfti þess en það er oftast mikill léttir að útskrifast, fá þá staðfestingu að ég sé ekki vera veik lengur. Annars er alveg yndislegt fólk sem vinnur á þessari deild, sama hvað sumir segja og finnst mér það bara óþakklæti að segja annað. Mér hefur líka bara liðið ágætlega undanfarið, þó það komi erfiðir tímar á milli, þá lagast það fljótt. Ég ætla ekki að skrifa mikið núna, heldur seinna. Vildi bara óska þeim sem þetta lesa velfarnaðar á nýju ári og þakka liðið
Kveðja, Dísa
            <description><![CDATA[Jæja, ég er ekki búin að skrifa í 2 mánuði, en ég er ennþá formlega ennþá á geðdeildinni, en er í jólafríi heima hjá foreldrum mínum. Ég er líka flutt í annað og hentugra húsnæði. 
Þessir 2 mánuðir eru búnir að vera mjög erfiðir, ég hef verið að glíma við mikið þunglyndi, kvíða, óróleika, pirring og mikla verki, sem enginn getur gert nokkurn skapaðan hlut við. Samt er ég með einn besta lækni sem hugsast getur. En hann er ekki súpermann, því miður.
Ástæðan fyrir því að ég er ennþá á deildinni er sú að ég á mjög erfitt með að sofa og þar er verið að gera allskonar tilraunir með hin og þessi lyf og skipta um skammtastærðir á þeim. Svo er ég að bíða eftir þjónustu sem ég þarf að fá þegar ég útskrifast og sú þjónusta er ekki alveg komin í gagnið enn en það er komið í farveg, ég á svo góðan hauk í horni með félagsráðgjafann á deildinni, hún er æði eins og bara flest starfsfólkið þar, fyrir utan næturvaktarfólkið flest. Það er nefnilega svo misjafnt hve mikið fólk er fast á reglunum, sumir leyfa það sem er "bannað" á meðan annar hristir hausinn og segir "já, því ekki". En aðrir halda að þessar "reglur" séu lög guðs eða hversever sem er heilagur fyrir þeim. Svo er ég opinberlega komin með ógeð á spítalamat, hann er alltaf jafn ógeðslegur.
Svo eru að koma jól, enn einu sinni. Jólin eru rosalega erfiður tími, fyrir marga eins og mig, ég fer þá alltaf að pæla í hinu og þessu, sem mig langar að eiga og hverju ég vil bæta mig í. Þetta á að heita heilög hátíð og hátíð fjölskyldunnar, en ég er ekki með neina fjölskyldu sjálf, enginn maður og engin börn, það er eitthvað sem mig langar í. En ég verð víst að sætta mig að það verður ekki. Svo krefjast jólin mikils penings fyrir hinu og þessu og þá sérstaklega gjöfum, þann pening á ég ekki til og þarf að fá lánað fyrir gjöfum, annars er ég búin að vera mjög dugleg að prjóna fyrir systrabörn mín og svo kannski ein dvd mynd með og þá er það komið, bara mamma og pabbi eftir.
En, já, ég ætla að gera mitt besta í að vera heima, og ef það gengur vel, þá gæti alveg farið svo að ég verði bara heima hjá mér í 1-2 nætur. Ég hef verið þar eina nótt og það gekk ágætlega nema ég svaf illa og lítið ég var svo vör um mig. En það er orðið rosalega fínt heima, allt að verða til fyrir jólin, tréð komið upp og allt orðið rosalega flott, það eina sem vantar er borðplatan, sem er tilbúin að mestu og að tengja uppþvottavélina en það verður ekki gert strax.
Ég er líka að bíða eftir hjálpartækjum, ég er búin að fá rafmagnsrúm sem ég keypti notað en það er mjög gott að sofa í því. Svo fékk ég snúningslak, sturtustól og stöng. Svo er ég að bíða eftir vinnustól, en hann auðveldar mér að vinna í eldhúsinu. Svo fæ ég líka þjónustu heim, liggur við að hverjum degi. Þetta ætti ekki að bregðast. Vonandi get ég farið að útskrifast um leið og ég er komin með fast prógramm til að fara eftir svo ég fari ekki aftur í sama farið. Bæði iðju og einhverja sjúrkaþjálfun, vonandi gengur þetta. ]]></description>
            <description><![CDATA[Jæja, er enn og aftur komin inn á geðdeild. Mér virðist ekki ætlast að takast að hrista þetta af mér. Sama hvað ég tek af lyfjum, þá næ ég ekki réttri hugsun, er alltaf að brjóta sjálfa mig niður hvað eftir annað. Mér tekst ekki að þykja vænt um sjálfa mig. Ég bara sit og stari á gólfið mest allan daginn, hef ekki áhuga né vilja til að gera nokkrun skapaðan hlut. Er með dimmar hugsanir og á erfitt með að standast langanir mínar, sem skapa öðrum sárindi ef mér tekst að framkvæma þær. Mér tekst rétt svo að skrifa niður hugsanir öðru hvoru og þá að pikka þær hérna inn sem ég veit ekki hvort sé rétt eða ekki. 
Ég hef ekki yfir neinu að kvarta svona veraldlegu, ég hef íbúðina mína og get keypt mér bíl, en ekkert af þessu sem ég er að fá upp í hendurnar nær athygli minni, ég sit bara og stari á gólfið, ein með dimmar hugsanir og langanir, ég á þessa yndislegu fjölskyldu sem er búin að þola margt mín vegna og samt hugsa ég bara hvað það yrði betra fyrir þau að ég væri ekki til. En það eru mínar hugsanir og eins og ég sagði þá er það kannski ekki rétt, en svoleiðis líður mér. 
Það er líka erfitt þegar fólk talar um að þetta jafni sig og ég verð betri... já, ok, en... þunglyndið kemur alltaf aftur og það er helvíti að geta alltaf átt von á því að þurfa að leggjast inn á geðdeild, láta loka sig inni svo maður fari nú ekki að skaða fjölskylduna með því að fyrirfara sér. Þó ég hugsi ekki þannig, ég skaða fjölskylduna frekar með því að vera til og vera vesen fyrir þau, valda þeim hugarangri og sársauka alveg endalaust... 
Ég er búin að missa alla von á því að geta átt eðlilegt líf, eignast mína eigin fjölskyldu og fara út á vinnumarkaðinn, geta farið og skemmt mér eitthvað... þetta er allt fjarlægur draumur sem ég veit að verður aldrei að veruleika.]]></description>
            <description><![CDATA[Þunglyndi er farið að herja á mig. Ég veit ekki hvers vegna, ég hef það gott þannig séð, en samt líður mér illa. Þessi sjúkdómur sem ég er með ætti að vera jafnari, ég ætti líka að fá að fara meira í maníu en þunglyndi, manían er skemmtilegri og þá líður manni ekki eins illa. Þó hún sé ekki eftirsóknarverð heldur. Ég vildi bara að ég gæti verið á beinu línunni, það tekst stundum eins og fyrir örfáum vikum, en það helst bara í mjög stuttan tíma. Síðast þegar ég talaði við geðlækninn minn sagði ég honum að mér liði vel og það eru bara rúm vika síðan, en eftir það fór að halla niður. 
Ég hef mig ekki í neitt, varla að ég nenni að mála, íbúðin lítur allavega ekki vel út núna verð ég að viðurkenna. En ég fór samt á Grensás í dag og náði að svitna svolítið, en þegar ég fer út meðal fólks með þessa líðan þá verð ég að setja upp grímuna og halda henni á meðan ég er í kringum fólk. Þeir sem ekki vita hvað ég meina er að maður nota þá litlu extra orku sem maður hefur í að þykjast vera hress, svona rétt á meðan maður er inn á milli fólks, svo er maður búinn á því þegar heim kemur.
Það er alveg ótrúlegt hvað þetta getur komið hratt, þetta þunglyndi. Fyrst heldur maður að þetta sé bara dagamismunur, en eftir 5-7 daga, þá sér maður að þetta gæti orðið vandamál. Ég er samt ekki að fara að gera mér neitt, er ekki í þannig pælingum, en mér líður samt ekki vel. Þetta verður bara að fá að ganga í gegn held ég.]]></description>
Dagurinn í dag og reyndar örlítið í gær, hafa verið mjög erfiðir. Í gær var ég alveg freðin andlega en í dag er mér búið að líða mjög illa og allir uppteknir við annað svo ég hafði engan til að vera með mér og engan til að tala við. Ekki fyrr en dúllan mín hún Alexía hringdi og spurði hvort við ættum að hittast eftir að hún heyrði mig gráta í símann. Það er svo gott að eiga góða vini eins og hana. Hún ætlar meira að segja að gista hjá mér í nótt. 
En það sem angrar mig mest eru skapsveiflurnar sem ég fer í gegnum. Eina stundina er allt í lagi, og aðra er ég langt niðri, eða jafnvel uppi, þó það gerist mjög sjaldan. Undanfarnar vikur hef ég verið á miðlínunni en þó hægt og rólega á niðurleið. Ég veit ekki af hverju, mig grunar að það séu allar þessar áhyggjur sem ég hef. Útaf bílaláninu sem ég fékk svo ekki, borga alla reikninga og eiga 30.000 eftir til að lifa af út mánuðinn sem 3 afmælum... vita ekki um liðveisluna sem ég átti að fá, vita ekki hvort ég fái lán fyrir nýju rúmi og svo margt annað. Það þarf svo lítið til að triggera niðursveiflu hjá mér og núna er þetta allt sem hjálpar ekki til við að halda geðheilsunni. Þunglyndið er að verða frekar mikið og kvíðinn enn verri. Svo er það þetta mál með að vera ein, ég get það varla þegar mér líður svona. Hefði ég átt að fara á sambýli? Ég efast það samt, mér hefði heldur ekki liðið vel með ókunnugum. Ég vildi óska að ég fengi liðveislu sem kæmi til mín á kvöldin bara til að tékka á mér, en ég held að liðveislur komi frekar á morgnana, ekki samt að ég hafi hugmynd um það. Það er einn af mestum kvíðunum, að vera ein, og svo fjármálaáhyggjur. Þetta hjálpast allt að greinilega.
Það er líka flókið að vita ekki hvort það er borderline personality röskunin eða geðhvörfin sem er að láta vita af sér, bæði hafa með þunglyndið að gera.
En jæja, sama hvort er, þá líður mér eins og mér líður og maður getur ekkert gert nema bíða og vona að það lagist.
Mér finnst vanta stað þar sem einmana fólk gæti farið og dundað sér með hinum einmana, eitthvað sem er opið um kvöld og helgar. Í staðinn hangir maður einn heima hjá sér, aleinn, leiðist og það fer út í það að líða mjög illa og hver veit hvað maður gerir þá. Ég tek það fram að ég er ekki í neinum sjálfsskaða pælingum. En svona nokkuð gæti hjálpað til... félagsheimili fyrir einmana fólk. Ég veit að þau eru til hérna í Reykjavík, en þau eru bara opin á daginn, virka daga, það er lítið í boði á kvöldin og um helgar. Jæja, best að reyna að sofa soldið...
            <description><![CDATA[Loksins er ég komin með net og sjónvarp. Bara búin að bíða í 2 vikur. Aftur á móti hef ég ekkert heyrt frá félagsráðgjafanum eða TR. Er búin að bíða í meira en mánuð eftir orði frá TR í sambandi við að fá styrk til bílakaupa, en ég hef ekkert heyrt í þeim. Svo á ég að fá liðveislu hjá féló og ég sótti um lán hjá þeim til að geta keypt mér nýtt rúm, ég sef ennþá á rúminu sem ég fékk í fermingjargjöf, og ég á orðið erfitt með að komast fram úr rúminu vegna verkja og stirðleika á morgnana. Ég er með gálga og nota hann mikið til að snúa mér og setjast upp, en bakið er bara frosið þegar ég vakna.
Ég skil ekki af hverju allt þarf að taka svona langan tíma hjá þessu blessaða kerfi okkar. Ég veit að ég er ekki ein um að þurfa að bíða, en það eru takmörk hve lengi maður þolir við.
Annars er ég búin að eiga góðan dag. Ég fór með vinkonu minni í fjölskylduhjálpina og fékk smá mat, þar sem ég hafði ekki efni á að kaupa einu sinni mjólk eða brauð og ég fékk það þar (fékk að vísu bjúgu, en gaf pabba þau). Það er alveg rosalega gott starf sem þau vinna þarna hjá fjölskylduhjálpinni. Svona fólk á að fá mikinn meiri heiður en þau fá, þau eru að bjarga lífi fólks, bókstaflega. 
Svo fór ég heim og fékk sjónvarpið og internetið tengt svo ég þarf ekki að nota netpunginn lengur (kvíði samt að fá reikninginn fyrir honum). Það munar miklu að hafa þetta þegar maður er öryrki og getur ekki gert baun í bala. Ég nefnilega missteig mig um daginn og er bara í teygjusokk og á að hvíla fótinn, ég var bara heppin að brotna ekki. 
Mér var svo boðið í mat hjá mömmu og fékk slátur sem var rosalega gott. Og nú er ég að bíða eftir Grey's anatomy á stöð 2... og fá gesti :)]]></description>